Sumardeildin í götukörfubolta
KKÍ hefur ákveðið að efna til veglegs götuboltamóts eða “Streetball-móts” í sumar. Stefnt er að því að leika í nokkrum riðlum utandyra út um allt land í sumar og leikið er með klassísku 3-á-3 sniði þar sem liðin skiptast á að spila sókn eftir skoraða körfu.
Lið skrá sig til leiks og raðað verður í riðla eftir staðsetningu. Þannig er miðað við að lágmarki sex lið verða í riðli og hvert lið myndi leika um 10 leiki í sínum riðli.
Skráning stendur til 18. júní.
Meiri upplýsingar um sumardeildina eru hér.
