Stjörnuleikur kvenna

Stjörnuleikur kvenna verður núna á Miðvikudaginn 30. janúar í Toyota höllinni í Keflavík.

Haukar eiga þrjá fulltrúa í leiknum. Margrét Rósa Hálfdanardóttir og Siarre Evans voru kosnar af körfuboltaunnendum í byrjunarliðið og Gunnhildur Gunnarsdóttir var svo valin af þjálfurum.

Margrét Rósa og Evans láta sér ekki nægja að taka þátt í leiknum, heldur munu þær einnig etja kappi við hvor aðra, ásamt fleirum, í þriggjastiga keppninni. 

Dagskráin hefst kl. 19:00 og leikurinn sjálfur kl. 19:30.

Undirritaður hvetur Haukafólk að missa ekki af þessum hátíðhöldum.