Sjö iðkendur úr kkd valinn í verkefni fyrir yngri landslið KKÍ í sumar

HaukarBikarmeistariUnglingaflKKÍ tilkynnti nýlega lokahópa fyrir verkefni sumarsins fyrir landslið drengja og stúlkna yngri en 18 ára. Haukar eiga sjö leikmenn í þessum landsliðum og er kkd. félagsins ákaflega stollt af þessum krökkum og óskar þeim innilega til hamingju með glæsilega árangur, en ljóst er að þessi frábæri árangur næst ekki nema með því að leggja sig gríðarlega mikið fram.

Leikmenn frá Haukum sem valdir voru í landslið Íslands eru:

Sigrún Björg Ólafsdóttir
Haukar U16 stúlkna

Stefanía Ósk Ólafsdóttir
Haukar U16 stúlkna

Anna Lóa Óskarsdóttir
Haukar U18 stúlkna

Ragnheiður Björk Einarsdóttir
Haukar U18 stúlkna

Hilmar Pétursson
Haukar U18 drengja

Hilmar Smári Henningsson
Haukar U18 drengja

Ísak Sigurðarson
Haukar U18 drengja

U15 ára liðin fara á Copenhagen Invitational mótið í Danmörku í júní. U16 og U18 liðin fara fyrst á NM í Finnlandi í júní og svo fara bæði þessi lið í Evrópukeppni FIBA í sumar. Við óskum þeim aftur til hamingju og góðs gengis í verkefnum sumarsins.
Auk þess eiga Haukar nokkra leikmenn í U20 ára liðum og A landsliðum, en það verður kynnt síðar.

Áfram Haukar.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…