Sigur á Gróttu – Ásgeir Ingólfs spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Hauka í fimm ár

Haukar sigruðu Gróttu 1-0 í Fótbolta.net mótinu í kvöld en leikið var á Ásvöllum. Timothy McNeil, sænskur framherji sem er búinn að vera á reynslu hjá okkur, gerði sigurmark leiksins á 20. mínútu.

Ásgeir Ingólfsson kom inn á i leiknum og spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir félagið í fimm ár. Það er að sjálfsögðu mikið gleðiefni fyrir alla Haukara.

Með sigrinum enda Haukar í öðru sæti B deildar riðils 2 með fimm stig en Grótta er á toppnum með sex stig.

Áfram Haukar. Félagið mitt.

Kristján Ómar og Ásgeir Ingólfs