3-0 Haukasigur á Skaganum

Haukar unnu 3-0 sigur á ÍA í B riðli Faxaflóamóts kvenna í kvöld en leikið var í Akraneshöllinni. Með sigrinum eru Haukar komnir á toppinn í riðlinum.

Elín Björg Símonardóttir kom okkur yfir á 13. mínútu og Leli Halldórsdóttir gerði annað markið tveimur mínútum síðar.

Staðan í hálfleik var 2-0 en Helga Magnea Gestsdóttir tryggði svo 3-0 sigur á 89. mínútu.

Glæsilegur sigur gegn sterku ÍA liði sem spilar í Inkasso deildinni eins og Haukar.

Næsti leikur í Faxanum er Hafnarfjarðarslagur þegar FH kemur í heimsókn á Ásvelli en sá leikur fer fram nk. sunnudag kl. 16.00. Þá þurfa Hafnfirðingar að fjölmenna á völlinn!

Áfram Haukar. Félagið mitt.

 

 

Leli Halldórsdóttir

Helga Magnea Gestsdóttir

Elín Björg Símonardóttir