Sigur í fyrsta leik á Edenmótinu

HaukarFyrstu leikir í Eden mótinu voru spilaðir í gær en fjögur lið taka þátt þ.e. Hamar, Haukar, FSu og Þór Þorl. Haukar sigruðu Þór með minnsta mun 73-74 og var Örn Sigurðarson stigahæstur Hauka með 15 stig og hjá Þór var Emil Einarsson með 25 stig.

Þór Þ. – Haukar 73 – 74
Stigahæstir hjá Þór:
Emil Einarsson 25 stig, Þorsteinn Ragnarsson 25 stig og Bjarki Gylfason 8 stig

Stigahæstir hjá Haukum: Örn Sigurðarson 15 stig, Haukur Óskarsson 15 stig, Guðmundur Sævarsson 8 stig, Davíð Páll Hermannsson 8 stig og Sævar Haraldsson 8 stig

Næsti leikur Hauka í Edensmótinu er á föstudagskvöld gegn FSu kl. 20.15 í Hveragerði.