Sala á körfuboltabúningum frá Errea, miðvikudaginn 2. des.

Haukar treyja-455x525Söludagur á körfuboltabúningum fyrir iðkendur yngri flokka deildarinnar verður haldinn miðvikudaginn 2. desember á ganginum í Schenkerhöllinni.

Til sölu verða körfuboltabúningar, íþróttapeysur, hettupeysur, æfingabuxur, joggingbuxur, húfur og vettlingar og margt fleira.

Kjörið tækifæri til að kaupa jólagjöfina fyrir krakkana.

Salan verður frá kl. 17:00 – 19:00 miðvikudaginn 2. desember.