Röstin féll í kvöld – rauðir aftur á sigurbraut

Sveinn Ómar Sveinsson í baráttunni við hinn snjalla Ómar Sævarsson í kvöld - Sveinn Ómar átti flottan leik í kvöld 10 stig og 6 fráköstEf einhver var ekki farinn að taka liðið hans Péturs Ingvarssonar alvarlega fyrir leik kvöldsins þarf hann að gera það núna. Haukar unnu Grindavík í kvöld í Iceland Express-deildinni afar sannfærandi 63-82. Leikmenn Hauka voru betri og sterkari á öllum vígstöðvum og t.a.m. þá var leikstjórnandi Hauka Emil Barja með 11 fráköst.

Eftir jafnan fyrsta leikhluta voru það leikmenn Hauka sem tóku öll völd á vellinum. Keyrðu þeir muninn upp í 12-19 stig og hélst munur Hauka út leikinn. Grindvíkingar náðu að minnka nokkrum sinnum í 9 eða 10 stig en hraustir Hafnfirðingar stóðust öll áhlaup og unnu flottan sigur.

Fyrir leik kvöldsins deildu Grindvíkingar toppsætinu með Snæfellingum og að auki voru þeir búnir að vinna alla heimaleiki sína í vetur.

Grindavik skoraði 63 stig sem segir allt um þann frábæra varnarleik sem Haukar léku en sóknarmenn Grindvíkinga sem þykja með þeim bestu á landinu gekk fátt og skot þeirra geiguðu.

Haukar fráköstuðu frábærlega í leiknum og tóku 13 fleiri fráköst 45/58 og fengu tæplega 30 fleiri skot.

Eftir þennan sigur eru Haukar í 5.-7. sæti með 14 stig ásamt Tindastól og Stjörnunni en vegna hagstæðara stigakors úr innbyrðisleikjum eru Haukar í 5. sæti.

Stigahæstur hjá Haukum var Gerald Robinson með enn eina rosalega tvennu eða 20 stig og heil 23 fráköst. Semaj Inge setti 19 stig og Haukur Óskarsson skoraði 11 stig.

Næsti leikur Hauka er á fimmtudag gegn Fjölni.

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Umfjöllun um leikinn á Karfan.is

Myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…