Pétur Ingvarsson hættir sem þjálfari

Haukar

Fréttatilkynning frá körfuknattleiksdeild Hauka.

Pétur Ingvarsson, þjálfari meistaraflokks karla hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu sem þjálfari meistaraflokksliðs Hauka síðast liðin 4.ár.

Körfuknattleiksdeild Hauka þakkar Pétri kærlega fyrir vel unnin störf á þeim fjórum árum sem Pétur hefur verið þjálfari meistaraflokks karla. Pétur tók við liðinu í fyrstu deild og skilaði því í 4 liða úrslit Powerade bikarins og í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar á síðasta keppnistímabili sem jafnframt var fyrsta tímabil Hauka í efstu deild í nokkur ár.

Pétur er mikill fagmaður í þjálfun mikill keppnismaður og með brennandi áhuga á íþróttinni sem hefur skilað sér í árangri liðsins og góðu starfi hans.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka og meistaraflokksráð karla hefur átt traust og gott samstarf við Pétur Ingvarsson á þessum árum og telur deildin að mikil eftirsjá sé af starfskröftum hans af þessum vettvangi. Pétur er og verður ávallt Haukamaður og vonast stjórn körfuknattleiksdeildar til að geta fengið síðar að njóta  krafta hans áfram innan félagsins.

Hafinn er leit að eftirmanni Péturs í þjálfarastöðu hjá meistaraflokki Hauka.

 

Fyrir hönd stjórnar og meistaraflokksráðs karla

Samúel Guðmundsson og Magnús Ingi Óskarsson

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…