Ný námskeið hjá Hugaríþróttadeildinni hefjast 11. janúar.

Það er búið að opna fyrir skráningar á næstu vetrar- og vornámskeið hjá Hugaríþróttadeildinni, annars vegar jan-mars tímabilið og apríl-júní tímabilið hins vegar.

Vetrarnámskeiðin hefjast mánudaginn 11. janúar og athugið að aðeins eru 10 pláss í boði á hverju námskeiði.

Námskeið í boði fyrir 8-12 ára
  • Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 15:15-16:30
  • Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 16:30-17:45
– Iðkendur geta ekki flakkað á milli tímasetninga.
Iðkendur á aldrinum 12-16 ára
  • Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 17:45-19:00.
Æfingarnar fara fram í húsnæði NÚ við Reykjavíkurveg 50 í Hafnarfirði. Æfingarnar eru samsettar úr rafíþróttum (Fortnite, Counterstrike, Call of Duty, o.fl.), hugaríþróttum, líkamlegri þjálfun og fræðslu um heilbrigðan lífstíl. Æfingarnar fara í grunninn þannig fram að í 2/3 af tímanum eru spilaðir tölvuleikir í fullkomnu tölvuveri Hugaríþróttadeildarinnar, og 1/3 af tímanum eru eru gerðar líkamlegar æfingar og ýmsar hugarþrautir eins og skákþrautir, að tefla hraðskák, „IQ-þrautir“ og fleira slíkt. Að auki fá iðkendur heimaverkefni sem felast í því að horfa á stutta fræðandi fyrirlestra um t.d. svefn, næringarfræði, mannslíkamann og þjálfun hugans.  Hverju námskeiði lýkur svo með félagslegum atburði þar sem hópurinn hittist og gerir sér glaðan dag.
Farið inn á www.haukar.felog.is til að ganga frá skráningum og munið að skrá ykkur inn með Íslyklinum til þess að nýta frístundastyrk sveitarfélagsins.
Tölvubúnaðurinn er eins og best verður á kosið; Lenovo Legion tölvur og jaðarbúnaður sem rafíþróttamenn í fremstu röðu myndu sætta sig við.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…