NÁMSKEIÐ Í BOÐI Á VETRAR- og VORTÍMABILI 2021 (jan-mars & apríl-júní)

Það er búið að opna fyrir skráningar á næstu vetrar- og vornámskeið hjá Hugaríþróttadeildinni tímabil, annars vegar jan-mars tímabilið og apríl-júní sömuleiðis. Vetrarnámskeiðin hefjast mánudaginn 11. janúar.
ATH! Það eru aðeins 10 pláss í boði á hverju námskeiði.
Námskeið í boði fyrir 8-12 ára
Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 15:15-16:30
Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 16:30-17:45
– Iðkendur geta ekki flakkað á milli tímasetninga.
Iðkendur á aldrinum 12-16 ára
Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 17:45-19:00.
Farið inn á www.haukar.felog.is til að ganga frá skráningum og munið að skrá ykkur inn með Íslyklinum til þess að nýta frístundastyrk sveitarfélagsins.

…………………….

NÁMSKEIÐ Í BOÐI Á HAUSTÖNN 2020

Haustið 2020 verða námskeið í boði fyrir tvo aldursflokka sem hefjast 5. október og verða fram að jólafríi. Námskeiðsgjaldið fyrir þetta tímabil er á sérstöku kynningarverði, aðeins 24.900 kr. og nýta má frístundastyrkinn frá Hafnarfirði fyrir 3 mánuði upp að 4.500 kr., sem gerir hlut iðkandans 11.400 kr. ef styrkurinn er nýttur. Athugið að aðeins eru 20 pláss í boði á hvoru námskeiði.

Skráningar eru hafnar og fara fram á haukar.felog.is

 

NÁMSKEIÐSLÝSING

Æfingarnar fara fram í húsnæði NÚ við Reykjavíkurveg 50. Æfingarnar eru samsettar úr rafíþróttum (Fortnite, Counterstrike, Call of Duty, o.fl.), hugaríþróttum, líkamlegri þjálfun og fræðslu um heilbrigðan lífstíl. Æfingarnar fara í grunninn þannig fram að í 2/3 af tímanum eru spilaðir tölvuleikir í fullkomnu tölvuveri Hugaríþróttadeildarinnar, og 1/3 af tímanum eru eru gerðar líkamlegar æfingar og ýmsar hugarþrautir eins og skákþrautir, að tefla hraðskák, „IQ-þrautir“ og fleira slíkt. Að auki fá iðkendur heimaverkefni sem felast í því að horfa á stutta fræðandi fyrirlestra um t.d. svefn, næringarfræði, mannslíkamann og þjálfun hugans.  Hverju námskeiði lýkur svo með félagslegum atburði þar sem hópurinn hittist og gerir sér glaðan dag.

 

ÆFINGATAFLA – Fyrsti tíminn er mánudaginn 5. október

Fyrir 4.-7. bekkinga (8-12 ára)

  • Mánudagar 15:30-17:00
  • Fimmtudagar 15:30-17:00

 

Fyrir 8.-10. bekkinga (12-16 ára)

  • Mánudagar 17:00-18:30
  • Fimmtudagar 17:00-18:30