Njarðvík – Haukar í kvöld

Á kvöld, miðvikudaginn 11.apríl kl. 19:15, sækja Haukastúlkur Njarðvík heim í þriðja úrslitaleik Iceland Express deildar kvenna í körfuknattleik.

Byrjunin hefur því miður ekki verið alveg eins og við hefðum kosið og Haukar komnir með bakið fast upp að vegg og 2-0 undir í viðureigninni.  En sem betur fer fyrir okkur þá þarf að vinna 3 leiki og á meðan það er von, þá munum við berjast saman áfram og gera allt til að landa sigri á morgun. Liðinu hefur ekki gengið verr á útivelli í vetur og fyrsti leikurinn í seríunni í Njarðvík tapaðist á síðustu sekúndunum og því er nauðsynlegt að Hafnfirðingar fjölmenni í Ljónagryfjuna og tryggi það að slíkt slys gerist ekki aftur.

Látum vel í okkur heyra og hjálpum stelpunum að spila toppleik og til sigurs.   Það kemur ekki til greina að sú þéttavaxna hefji upp raust sína á morgun og við munum yfirgnæfa hana í pöllunum og fresta hennar gauli.

VIÐ HEIMTUM ANNAN HEIMALEIK !

Áfram Haukar, alltaf, alls staðar !

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…