Mfl. karla í körfu í keppnis- og æfingaferð til Danmerkur

finnurMeistaraflokkur karla í körfu verður um helgina í Danmörku, nánar tiltekið í Aarhus að spila á móti þar sem tvö sterkestu lið Danmerkur munu etja kappi við Haukamenn. Í dag, miðvikudaginn 22. sept. er fyrsti leikur okkar stráka, en þá munu þeir spila á móti Bakken Bears kl. 15:30 að íslenskum tíma og svo á laugardag er leikið gegn Horsens IC kl. 11:30.

Þessi tvö lið eru gríðarlega sterk og eru tvö langsterkustu lið Danmerkurs. Bæði liðin eru atvinnumannalið og eru þau bæði með fjóra „kana“ auk sterkra evrópskra leikmann, þá aðallega frá austur evrópu. Bæði lið eru mjög hávaxin og hafa gríðarlega breidd og ljóst er að okkar strákar þurfa að spila gríðarlega vel til að eiga möguleika í þessu móti.

Haukaliðið er aðeins breytt frá síðasta ári en Kári Jónsson er farinn til USA, Kristinn Marinósson til ÍR og Kristinn Jónasar og Guðni Valentínusar hafa lagt skóna á hilluna. Í liðið hafa komið Breki Gylfason og Snjólfur Björnsson, báðir úr Breiðablik og hafa þeir verið að standa sig vel í þeim æfingaleikjum sem liðið hefur spilað í haust.
Auk þess mun nýr bandarískur leikmaður stíga sín fyrstu skref í Haukabúningnum en hann heitir Aaron Brown og kemur beint úr hinum sterka körfuboltaskóla St. Joe’s, þar sem hann hefur átt mjög góð ár og búast Haukamenn við miklu af þessum sterka leikmanni.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…