Marel spáir í spilin

 

Heimasíðan setti sig í samband við Marel Örn Guðlaugsson fyrrum leikmann Hauka og bað hann um að rýna í leikinn. Marel segir að þetta eigi eftir að verða athyglisverður leikur og að leikurinn verði hníf jafn til síðustu mínútu.

„Þetta ætti að verða athyglisverður leikur.  Þarna er efsta lið 1. deildar að mæta í heimsókn til okkar.  Þór hefur ekki tapað leik í vetur, þannig að þeir ætla að halda sigurgöngu sinni áfram og mæta fullir sjálfstrausts,“ segir Marel og telur að leikurinn verði jafn en að breidd Þórs liðsins sé ekki nægileg til að knýja fram sigur. 

„Ég reikna með að þessi leikur verði í járnum mest allan leikinn, en geri þó ráð fyrir að við klárum þetta í 4ja leikhluta, lokatölur 85-77.  Þórs liðið hefur ekki mikla breidd, en er með góða 5-6 leikmenn og eru að keyra leikina sína á fáum mönnum.  Við eigum að hafa meiri breidd en þeir og geta nýtt okkur að spila stíft á þá og keyra upp hraðann“. 

Marel segir að Haukar verði að vera með vörnina á hreinu því að Þórsliðið er með fína nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna. 

„Í Þórsliðinu eru margar skyttur og skv. tölfræðinni þá eru þeir að nýta skotin sín vel, sérstaklega fyrir utan þriggja stiga línuna, en liðið er að nýta 44% skota sinna utan línunnar.  Það eru 3 útlendingar í Þórs liðinu, sem allir eru að skila yfir 20 stigum, þannig að vörnin þarf að vera í lagi“.

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…