Leikur nr. III – Haukar geta tryggt sig í úrslitin

Auður stóð sig frábærlega í KeflavíkHaukarnir taka á móti Keflavík í þriðja leiknum í undanúrslitum Dominos deildar í kvöld kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Haukarnir geta tryggt sig áfram í úrslitin með sigri og því er leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir okkur Haukanna og því mikilvægt að fólk fjölmenni á pallanna í kvöld og hvetji stelpurnar til sigurs í þessum mikilvæga leik.

Haukar hafa unnið báða leikina nokkuð sannfærandi. Í síðasta leik sem var í Keflavík, sýndu stelpurnar frábæran karakter eftir að hafa átt dapran fyrsta leikhluta þar sem Keflavík náði ágætis forystu. En stelpurnar okkar komu ákveðnar til leiks í öðrum leikhluta og náðu að minnka forystu heimamastúlkna niður í tvö stig fyrir hálfleikinn. Í síðari hálfleik tóku Haukarnir öll völd á vellinum og unnu sanngjarnan sigur.
Allt liðið spilaði vel en að öðrum ólöstuðum var Auður Ólafsdóttir kona leiksins og átti stórleik. Stjórnaði liðinu eins og herforingi, auk þess að skora 18 stig og taka 8 fráköst.

Nú fyllum við áhorfenda bekkina og sýnum styrk okkar Haukamann í kvöld. Tökum út kústinn og sópum Keflvíkingum út úr úrslitakeppninni.