Kkd. Hauka skrifaði undir samninga í dag – Helena komin heim

þjálfarar Hauka kkd 2015Körfuknattleiksdeild Hauka gekk í dag frá samningum við þjálfara meistaraflokka karla og kvenna og tilkynnti í leiðinni að Helena Sverrisdóttir hafi skrifað undir leikmannasamning við félagið.

Í karlaliðnu mun Ívar Ásgrímsson halda áfram sem aðal þjálfari liðsins og Emil Örn Sigurðarson mun einnig halda áfram sem aðstoðarþjálfari. Að auki mun Pétur Ingvarsson koma inní teymið, en Pétur sem er uppalinn Haukamaður, kemur hann með gríðarlega reynslu eftir að hafa verð aðal þjálfar í efstu deild í mörg ár.

Hjá meistaraflokki kvenna mun einnig verða þriggja manna þjálfarateymi þar sem Ingvar Guðjónsson og Andri Þór Kristinsson munu sjá um þjálfun en auk þess mun Helena Sverrisdóttir koma inn sem spilandi aðstoðarþjálfari. Ingvar er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu en hann hefur þjálfað yngri flokka félagsins síðustu ár með einstaklega góðum árangri og var aðstoðarþjálfari mfl. kvenna í fyrra. Andri Þór kemur nýr inn til félagsins en hann hefur þjálfað mfl. Breiðabliks síðustu ár og hefur þar náð góðum árangri og byggt upp öflugt kvennastarf þar. Haukar bjóða Andra velkominn til starfa
 
Helena Sverrisdóttir skrifaði undir leikmanna samning við kkd. Hauka og mun því spila með hinu unga og efnilega liði Hauka næsta vetur. Helena er ein þekktasta körfuknattleikskona landsins og því er þetta gríðarlegur fengur fyrir Hauka og kvenna boltann á Íslandi.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…