Keflavík – Haukar í Dominos deildinni í kvöld

Emil Barja mun stjórna Haukaliðinu í Keflavík í kvöldHaukastrákarnir munu spila síðasta leik sinn fyrir jólafrí í kvöld er þeir fara til Reykjanesbæjar og etja kappi við Keflvíkinga kl. 19:15.

Haukarnir geta með sigri tryggt sér þriðja sætið í deildinni og eru allir ákveðnir í því að halda áfram sigurgöngunni en þrír síðustu leikir liðsins hafa unnist. 

Strákarnir sýndu sparihliðarnar í síðasta leik sínum, á móti Tindastóli, og unnu öruggan 23 stiga sigur á móti liðinu sem vermir annað sætið. Allt liðið spilaði einstaklega vel og þrátt fyrir að lykilmenn liðsins lentu snemma í villuvandræðum, kom það ekki að sök þar sem allur bekkurinn spilaði einstaklega vel.

Við hvetjum allt Haukafólk að gera sér ferði til Keflavíkur og styðja strákana í baráttunni.