Körfuboltaveisla vikunnar hefst í kvöld kl. 19.15, miðvikudag, þegar Haukar taka á móti Keflavík

Ragna Margrét Brynjarsdóttir, íþróttakona Hauka 2010 og fyrirliði meistaraflokks

Kæru Haukafélagar, við óskum ykkur gleðilegs afmælisárs og þökkum fyrir stuðninginn á liðnum árum.  Á árinu eru tvö stórafmæli, Knattspyrnufélagið Haukar 80 ára og Körfuknattleikssambandið fagnar 50 ára afmæli.  

Haukar bjóða upp á sannkallaða körfuboltaveislu á Ásvöllum í vikunni sem hefst í kvöld, 5. janúar, á stórleik í Iceland Express deild kvenna. Haukar taka þá á móti liði Keflavíkur. Leikurinn hefst kl. 19.15. Mjög góð stemmning var á síðasta heimaleik hjá stelpunum, þegar þær knúðu fram framlengingu með flottri flautukörfu, og viðbúið er að stemmningin verði einnig frábær á morgun.

Henning Henningsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, kemur fyrir leikinn og spjallar við Hauka í horni um andstæðinginn og helstu áherslur kvöldsins.

 

Ef ármótaheitið fólst ekki í að hreyfa sig meira á nýju ári, þá ætti það að minnsta kosti að vera að fylgjast með öðrum hreyfa sig og um að gera að byrja á því strax á morgun. Haukastúlkur voru að komast á ágætis skrið fyrir jól og vonandi að framhald verði á því á nýja árinu. Liðið hefur misst Telmu Fjalarsdóttur fyrirliða úr hópnum vegna anna við vinnu, en við eigum stóran og breiðan hóp sem verður ekki í vandræðum með að fylla hennar skarð.  Ragna Margrét íþróttakona Hauka tekur við keflinu sem fyrirliði og hún tekur ekki neitt annað í mál en sigur í fyrsta leik.  Keflavík hefur bara tapað einum leik í deildinni í vetur og því kominn tími á tapleik númer tvö.

 

Allir úr sófanum og upp á Ásvelli að fylgjast með meyjunum kljást við Keflavík.  Það var að myndast góð stemming í húsinu fyrir áramót með Sigurjón Sigurðsson (Didda) sem kynni ásamt aðstoðarmönnum og við höldum því að sjálfsögðu áfram. 

 

Það verður kaffi og með því í boði fyrir meðlimi Hauka í horni, en hinir sem ekki eru í þeim frábæra félagsskap geta alltaf verslað í Haukasjoppunni.


Með Haukakveðju,
Kvennaráðið.

Veislan heldur svo áfram á fimmtudaginn, 6. janúar, en heyrst hefur að Haukafólk ætli að fjölmenna á Þrettándagleðina og svo á leikinn á eftir, Haukar – Hamar í Iceland Express deild karla. Sá leikur hefst 19.45.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…