Körfuboltadagur Hauka

Íslandsmeistarar í 9. flokki karlaÁ sunnudaginn næstkomandi, 4. september, munu Haukar standa fyrir körfuboltadegi fyrir krakka í 1. – 7. bekk á Ásvöllum. Herlegheitin hefjast kl. 11:00 og standa til 13:00.

Kl. 11:00 mun Gísli Guðlaugsson, formaður barna- og unglingaráðs, setja dagskránna og í kjölfarið mun Ívar Ásgrímsson, yfirþjálfari kkd. Hauka, fara yfir hvað verður í boði fyrir börn og foreldra í vetur.

Eftir að Gísli og Ívar hafa lokið sér af verður frjáls tími fyrir krakkana þar sem þeir geta spreytt sig í hinum ýmsu leikjum.

Dagskránna má finna undir „Lesa meira“

Dagskrá:

Kl. 11.00 – Dagskrá sett, Gísli Guðlaugsson, formaður barna- og unglingaráðs setur dagskránna og kynnir aðeins starfsemi kkd. Hauka og Ívar Ásgrímsson yfirþjálfari kkd. kynnir hvað sé í boði fyrir krakka og foreldra.

Kl. 11.00 – 11.50 Frjáls tími þar sem krakkar geta farið í hinar ýmsu þrautir og leiki sem tengjast körfubolta.

1.      Tvær troðslukörfur, ein sett upp fyrir yngstu og hin fyrir 11 ára – 12 ára.

2.      Tvær körfur þar sem hægt er að fara í skotkeppni, þar sem stig eru gefin fyrir að hitta úr hinum ýmsu stöðum (aldursskipt). Skráð niður skor hjá krökkunum.

3.      Knattþraut – sett upp braut þar sem dripplað er í gegnum sikk sakk braut og tekið sniðskot. Tekinn tími og skráð niður tími hjá öllum þeim sem taka þátt.

4.      Þrautabraut – sett upp drippl braut þar sem þarf að drippla í gegnum hinar ýmsu þrautir.

5.      Drippl- og skotæfingar þar sem hinir nýju útlendingar kkd.  munu kenna og leiðbeina

Kl. 12.00 – Bollakeppni – aldursskipt. Sigurvegari fær viðurkenningarskjal sem bollameistari

1.      5 – 6 ára

2.      7 – 8 ára

3.      9 -10 ára

4.      11 ára og eldri

Kl. 12.20 – Skotkeppni milli útlendinga og krakka. Dregin verða út 4 nöfn, tveir drengir og tvær stúlkur sem munu keppa við útlendinga í skotkeppni.

Kl.  12.40 Troðslukeppni – 5 mfl. menn munu keppa í troðslukeppni og munu krakkar og foreldrar taka virkan þátt í keppninni. 3 dómarar verða og munu þeir taka tillit til fagnaðarláta við að gefa einkunn.

Kl. 12.55 – Lok og allir fá eintak af æfingatöflu fyrir veturinn 2011 – 2012 og leikmenn meistaraflokka munu veita áritanir frammi í forsal.

Kaffi verður fyrir foreldra í anddyri og þar er hægt að ræða við þjálfara og stjórnarmenn deildarinnar.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…