Jakob Leó og Guðrún Jóna semja við knattspyrnudeild Hauka

Knattspyrnudeild Hauka hefur endurnýjað samninga við Jakob Leó Bjarnason og Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur um þjálfun á meistaraflokki kvenna.

Jakob Leó er aðalþjálfari liðsins en hann tók við liðinu í september 2017 ásamt Guðrúnu Jónu. Tímabilið 2018 hafnaði liðið í 5. sæti Inkasso deildarinnar en í 4. sæti í ár.

Guðrún Jóna mun einnig vera aðalþjálfari 2. og 3. flokks kvenna þar sem Helga Helgadóttir verður aðstoðarþjálfari. Þá mun Jóna koma í fullt starf hjá knattspyrnudeildinni frá og með næstu áramótum þar sem hún tekur þátt í fleiri verkefnum í knattspyrnudeild Hauka, m.a. í afreksþjálfun fyrir leikmenn meistaraflokka og yngri flokka félagsins, bæði karla og kvenna.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar samningum við þau Jakob og Jónu og bindur miklar vonir við þau á komandi árum.

Guðrún Jóna, Halldór Jón Garðarsson, form. knattspyrnudeildar, og Jakob Leó.

Ljósm. Hulda Margét