Igor Bjarni Kostic tekur við meistaraflokki karla og leiðir afreksþjálfun

Knattspyrnudeild Hauka og Igor Bjarni Kostic hafa skrifað undir samning þess efnis að Igor taki við þjálfun meistaraflokks karla auk þess sem hann mun leiða afreksþjálfun innan deildarinnar og byggja upp knattspyrnuakademíu Hauka, bæði karla og kvenna, í samstarfi við aðra þjálfara deildarinnar.

Um er að ræða fimm ára samning og bindur stjórn knattspyrnudeildar Hauka miklar vonir við ráðningu Igors Bjarna við þróa ungt og efnilegt lið Hauka en hann kemur einnig í fullt starf hjá félaginu.

Igor Bjarni er 36 ára gamall en hann kemur til Hauka eftir að hafa starfað fyrir norska knattspyrnusambandið en frá árinu 2015-2019 starfaði hann hjá Ullensaker/Kisa Fotball, m.a. sem development director, sem aðalþjálfari varaliðsins auk þess að vera yfirmaður akademíunnar.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka leggur ríka áherslu á að vera með framúrskarandi þjálfara innan sinna vébanda þar sem iðkendur þroskast sem hluti af liðsheild og safna frábærum minningum auk þess að bjóða upp á hágæða afreksþjálfun.

Ráðning Igors Bjarna er liður í að styrkja enn frekar þjálfarateymi knattspyrnudeildar Hauka þar sem reynsla hans og þekking mun nýtast í að byggja upp efnilegt knattspyrnufólk í yngri flokkum félagsins og gera það að öflugum meistaraflokksleikmönnum.  Því eru afar spennandi tímar framundan í Haukum!

Igor Bjarni Kostic