Inga Dís nýr liðsmaður Mfl Hauka

Inga Dís Jóhannsdóttir hefur gengið til liðs við ungt og öflugt handknattleikslið Hauka.
Inga Dís er ein af efnilegustu vinstri skyttum landsins og mun því styrkja lið Hauka fyrir komandi leiktíð. Hún á fjölda leikja að baki með yngri landsliðum Íslands og lék hún stórt hlutverk með U18 landsliðinu sem náði 8. sæti á HM síðasta sumar. Hjá Haukum hittir hún fyrir nokkra af þeim leikmönnum sem léku með henni á HM.
Inga Dís kemur til Hauka frá HK þar sem hún hefur leikið upp yngri flokka auk þess að spila með meistaraflokksliði félagsins.
Við hjá Haukum bindum miklar vonir við komu Ingu Dísar til félagsins og hlökkum til að sjá hana á vellinum næsta haust.
Frekari fregna af leikmannamálum er að vænta á næstu vikum frá Haukum.