Hugaríþróttadeild Hauka – rafíþróttir og skák í eina sæng – Námskeið hefjast 5. okt

Skákdeild Hauka hefur nú gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og rís úr öskustónni sem Hugaríþróttadeild Hauka. Innan deildarinnar verður skáklistinni sinnt sem fyrr, en starfsemin verður nú útvíkkuð og áhersla lögð á rafíþróttir og aðra leiki og spil sem reyna á heilann, viðbragð og takíska hugsun. Markmiðin starfsins verður tvíþætt

  • Að hjálpa ungum iðkendum sem hafa áhuga á hugaríþróttum/rafíþróttum að ná árangri með því að rækta bæði huga og líkama.
  • Að hjálpa ungum iðkendum að eiga í heilbrigðu sambandi við sína hugaríþrótt/rafíþrótt og bæta sína færni í „sýndarheimum“ jafnt sem og í raunheimum.

 

Forsvarsmenn Hugaríþróttadeildarinnar ættu að vera mörgum Haukamönnum kunnir, þeir Hafsteinn Jökull og Kristján Ómar.

 

NÁMSKEIÐ Í BOÐI Á HAUSTÖNN

Haustið 2020 verða námskeið í boði fyrir tvo aldursflokka sem hefjast 5. október og verða fram að jólafríi. Námskeiðsgjaldið fyrir þetta tímabil er á sérstöku kynningarverði, aðeins 24.900 kr. og nýta má frístundastyrkinn frá Hafnarfirði fyrir 3 mánuði upp að 4.500 kr., sem gerir hlut iðkandans 11.400 kr. ef styrkurinn er nýttur. Athugið að aðeins eru 20 pláss í boði á hvoru námskeiði.

Skráningar eru hafnar og fara fram á haukar.felog.is

 

NÁMSKEIÐSLÝSING

Æfingarnar fara fram í húsnæði NÚ við Reykjavíkurveg 50. Æfingarnar eru samsettar úr rafíþróttum (Fortnite og Counterstrike), hugaríþróttum, líkamlegri þjálfun og fræðslu um heilbrigðan lífstíl. Æfingarnar fara í grunninn þannig fram að í 40 mínútur eru spilaðir tölvuleikir í fullkomnu tölvuveri Hugaríþróttadeildarinnar, í 20 mínútur eru gerðar líkamlegar æfingar og 20 mínútur fara í ýmsar hugarþrautir eins og skákþrautir, að tefla hraðskák, „IQ-þrautir“ og fleira slíkt. Að auki fá iðkendur heimaverkefni sem felast í því að horfa á stutta fræðandi fyrirlestra um t.d. svefn, næringarfræði, mannslíkamann og þjálfun hugans.  Hverju námskeiði lýkur svo með félagslegum atburði þar sem hópurinn hittist og gerir sér glaðan dag.

 

ÆFINGATAFLA – Fyrsti tíminn er mánudaginn 5. október

Fyrir 4.-7. bekkinga (8-12 ára)

  • Mánudagar 15:30-17:00
  • Fimmtudagar 15:30-17:00

 

Fyrir 8.-10. bekkinga (12-16 ára)

  • Mánudagar 17:00-18:30
  • Fimmtudagar 17:00-18:30

 

AÐSTAÐAN

Aðstaðan er öll til fyrirmyndar.

Tölvubúnaðurinn er eins og best verður á kosið; Lenovo Legion tölvur og jaðarbúnaður sem rafíþróttamenn í fremstu röðu myndu glaðir sætta sig við.

Við hvetjum stelpur sérstaklega til þess að koma og taka þátt.