Henning Henningsson tekur við keflinu

Henning, Gísli og SamúelHenning Henningsson var kjörinn nýr formaður körfuknattleiksdeildar Hauka á aðalfundi deildarinnar nú nýverið. Henning tekur við formennskunni af Samúel Guðmundssyni sem gengt hefur formennsku síðustu 5 ár. Gísli Sigurbergsson var á sama fundi kjörinn nýr varaformaður deildarinnar.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum var samþykkt einróma að beina því til að aðalstjórnar Hauka að nýr íþróttasalur fyrir körfuknattleik við Ásvelli sem nú er í undirbúningi, beri nafn Ólafs Rafnssonar til heiðurs þess mikla Haukamanns og fyrrverandi formanns KKÍ, forseta ÍSÍ og Fiba Europe.