Haukur og Emil kallaðir í U-20

Haukur Óskarsson og Emil Barja berjast um laus sæti í U-20Benedikt Guðmundsson þjálfari U-20 ára landsliðs karla hefur valið 14 manna hóp sem mun æfa næstu vikurnar fyrir Evrópukeppnina sem fram fer síðar í sumar. Þessir 14 leikmenn sem valdir hafa verið við æfingarnar munu svo berjast um 12 laus sæti.

Haukur Óskarsson og Emil Barja eru fulltrúar Hauka í þessum hópi en hann heldur utan til Bosníu 12. júlí og leikur fyrsta leik gegn heimamönnum fimmtudaginn 14. júlí. Íslenska liðið er í riðli með Bosníu, Belgum, Ísrael og Hvíta Rússlandi.

Allur hópurinn.

 

Leikstjórnendur:
Ægir Þór Steinarsson, Fjölnir
Arnar Pétursson, Breiðablik
Emil Barja, Haukar
Daði Berg Grétarsson, Ármann
 
Bakverðir:
Martin Hermannsson, KR
Tómas Heiðar Tómasson, Fjölnir
Arnþór Guðmundsson, Fjölnir
Haukur Óskarsson, Haukar
Ólafur Helgi Jónsson, Njarðvík
Oddur Ólafsson, High School
 
Framherjar:
Trausti Eiríksson, Fjölnir
Haukur Helgi Pálsson, Maryland
 
Miðherjar:
Sigurður Þórarinsson, Fjölnir
Ragnar Nathanelsson, Hamar
 
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
AðstoðarþjálfariSverrir Þór Sverrisson