Haukastelpur í stúlknaflokki unnu A-riðil

Haukar

Stúlknaflokkur stóð sig gríðarleg vel um helgina og vann alla leiki sína. Barátta og leikgleði leikmanna Hauka var aðdáunar verð undir stjórn Hönnu Sesselju Hálfdanardóttur þjálfara sem nýlega tók við flokknum.

Fyrsti leikur liðsins á laugardag var gegn Njarðvík sem endaði með góðum sigri Hauka 59-50 þar sem Haukar voru yfir nánast allan leikinn. Þríeykið Margrét Rósa, Dagbjört og Lovísa réðu ríkjum undir báðum körfum og voru að skila mörgum auðveldum körfum fyrir Haukana. Gaman var að sjá efnilega leikmenn úr 9.flokki spila sig vel inn í liðið en Sólrún, Sigrún og Hrund sýndu allar góða takta í leiknum. Einnig voru Aldís og Kristjana að spila vel.  Stigaskor í leik: Dagbjört 21 stig, Margrét Rósa 20 stig, Lovísa 10 stig, Kristjana 5 stig, Aldís 3 stig.

 

Seinni leikur laugardagsins var gegn Grindavík  þar sem stelpurnar stóðu sig mjög vel. Leikurinn endaði með sigri Hauka 63-30 þar sem allir leikmenn spiluðu og þjálfarinn gat leyft sér að hvíla lykilleikmenn  liðsins. Stigaskor í leik:  Dagbjört 25 stig, Margrét 15 stig, Lovísa 12 stig, Aldís 3 stig, Kristjana 3 stig, Sigrún 3 stig og Hrund 2 stig.

Fyrri leikur sunnudagsins var gegn KR og stóðu stelpurnar sig mjög vel. Seinni hálfleikurinn var mun betri og einkenndist af mikilli baráttu og leikgleði. Leikurinn endaði 51-31 fyrir Hauka og síðustu 10 mínútur fengu Dagbjört, Margrét og Lovísa góða hvíld og risu hinar stúlkunar upp og stóðu sig vel inn á vellinum.

Stigaskor í leik: Margrét 17 stig, Dagbjört 8 stig, Lovísa 8 stig, Kristjana 7 stig, Aldís 5 stig, Eydís 2 stig, Freydís 2 stig og Guðrún 2 stig.

Lokaleikurinn var síðan gegn sterku liði Keflavíkur sem hefur verið nánast ósigrandi í þessum aldursflokki undanfarin ár.  Keflavík hafði fyrir leikinn unnið alla sína leiki örugglega og ætlaði liðið að rúlla yfir Haukana  með hröðum leik þar sem skipun þjálfara Keflavíkur var að keyra hröð hraðaupphlaup allan leikinn. Keflavíkurstelpur byrjuðu betur og komust vel yfir í fyrsta leikhluta sem endaði 12-6 fyrir þær. Í öðrum leikhluta komu Haukastelpur til baka og minnkuðu muninn í 23-21 í hálfleik eftir að Keflavík hafði haft 10 stiga forskot 23-13 um miðbik leikhlutans. Haukar voru mun sterkari undir körfunni sem skilaði þeim mörgum góðum stigum frá Margréti, Dagbjörtu og Lovísu. Baráttan harðnaði í seinni hálfleik þar sem illa gekk fyrir bæði lið að setja boltann í körfuna. Haukarnir brenndu af 6 vítum í röð í 3 leikhluta. Keflavík jók munin að nýju og náðu undir lok fjórða leikhluta 5 stiga forystu 39-34. Haukastelpur neituðu að gefast upp og setti Dagbjört niður 3 stiga skot og minnkaði munin í 39-37. Í næstu sókn braust Aldís af harðfylgi upp að körfunni og setur boltan ofaní og jafnar leikinn í 39-39. Þjálfari Keflavíkur tekur leikhlé þar sem innan við 1 mínúta er eftir af leiknum og spennan mikil í leiknum. Keflavíkurstúlkur fá nokkur tækifæri til að skora en mistekst. Sókn Keflavíkur  endar með því að Dagbjört stelur boltanum og sendir á Margréti Rósu sem skorar síðustu stig leiksins og tryggir Haukastelpum sætan baráttu sigur 41-39.

Stigaskor í leik:  Margrét 16 stig, Dagbjört 14 stig, Lovísa 7 stig, Aldís 4 stig og Sigrún 2 stig.

Barátta Haukastelpna var til fyrirmyndar og var aðdáunarvert að sjá samheldnina í hópnum. Guðrún, Freydís og Eydís komu einnig inn á með mikla baráttu í vörninni. Yngri stelpurnar úr 9.flokki þær Sólrún, Hrund og Sigrún komu inn í hópinn með fína baráttu auk þess sem Kristjana og Aldís úr 10.flokki stóðu sig mjög vel.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…