Haukar unnu Stjörnustríðið – myndband (uppfært)

Haukastelpurnar gerðu flotta hluti um helginaHaukar eiga víða efnilega íþróttamenn og er þar körfuboltafólk engin undantekning. Haukastelpur í 10-11 ára minni bolta tóku um helgina þátt í flottu móti sem haldið var hjá Stjörnunni í Garðabæ. Mótið hét því skemmtilega nafni ,,Stjörnustríð“ og gerðu okkar stelpur sér lítið fyrir og unnu Stjörnustríðið, glæsilegur árangur! Þjálfari stelpnanna sendi frá sér nokkur orð um mótið sem gaman er að lesa.

Við í minnibolta 10 og 11 ára kvenna fórum á Stjörnustríðsmótið síðustu helgi og stóðu stelpurnar sig rosalega vel. Stelpurnar höfðu ofsalega gaman að mótinu og voru með rosa stórt bros á sér allann tímann enda var þetta flott mót og allt til fyrirmyndar. 

Þær vorum fámennar á vellinum eða fimm leikmenn þær Helga, Karen, Rakel, Áslaug og Sigrún en fullt af foreldrum, systkinum og flottu stuðningsfólki sem fylgdu okkur og hvöttu okkur til sigurs. Stelpurnar enduðu sem sigurvegarar og fengu glæsilegan bikar sem allar hlakka til að fara með heim og sýna foreldrum og vinum en þær fá að hafa hann hver í viku í senn. 

Ég vil nýta tækifærið og óska þessum framtíðar körfuboltastelpum til hamingju frábært mót og fyrir frábæra skemmtun. Ég hafði rosalega gaman að þessu og hlakka til að fara á næsta mót með þessum snillingum.

Takk kærlega fyrir mig

Jóhanna Björk þjálfari minnibolta 10 og 11 ára

 

Hér er svo skemmtilegt myndband frá mótinu!

 

 

 

 

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…