Haukar styrkja sig

Katie Snodgrass - osnaball.de

Haukar hafa ráðið til sín erlendan leikstjórnanda að nafni Katie Snodgrass fyrir komandi átök í IE – deild kvenna. Leikmaður inn er væntanlegur til landsins í dag og verður að öllum líkindum með Haukum þegar þær mæta Snæfelli í deildinni á morgun á Ásvöllum. Katie hefur leikið undanfarin ár í þýskalandi bæði í 1. og 2. deild og lék síðast með liði Oberhausen í 1. deildinni. Katie er lýst sem miklum íþróttamanni, lunkin með boltann og fínasta skytta.

Katie lék aðeins þrjá leiki með liði Oberhausen á þessari leiktíð en var leyst undan samningi sökum sparnaðar. Í þessum þremur leikjum skorðaði hún 8 stig að meðaltali. Áður en hún gekk til liðs við Oberhausen spilaði hún með liði Osnabrück í 2. deildinni í tvö ár og gerði 19 stig að meðaltali á þessum tveimur árum.

Snodgrass er 175 cm á hæð og getur spilað stöðu bakvarðar eða skotbakvarðar. Hún spilaði með Sothern Nazarena University í Oklahoma og var með tæp 10 stig að meðaltali yfir háskólaferilinn.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…

Haukar styrkja sig

Haukar hafa ákveðið að styrkja sig fyrir átökin í 1. deild karla á nýju ári. Hafa þeir ráðið til leiks Landon Quick sem lék með Skallagrími í Iceland Express-deildinni á síðustu leiktíð.

Landon kom til Skallagríms fyrir seinnihlutan á síðustu leiktíð og spilaði 12 leiki í IE-deildinni. Í þessum 12 leikum skoraði hann 20,1 stig að meðaltali, tók 6,7 fráköst og gaf 5,8 stoðsendingar.

Ljóst er að með komu Landon verður Haukaliðið enn sterkara en Haukaliðið er í efsta sæti 1. deildar með 16 stig líkt og Skallagrímur og KFÍ.

Unnið er að því að fá leikheimild fyrir Landon og verður því frumraun hans væntanlega á föstudagskvöldið þegar Haukar spila gegn Skallagrími í Borgarnesi. 