Haukar – Snæfell fimmtudaginn 15. janúar kl. 19:15

emilbarjaÍ kvöld, fimmtudaginn 15. janúar, er fyrsti heimaleikur strákanna í Dominos deildinni í körfu. Snæfellingar koma í heimsókn og er leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið.

Haukar hafa tapað síðustu tveim leikjum sínum, báðum útileikjum, og hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit í þeim leikjum. Með sigri geta strákarnir komist aftur í toppbaráttuna og því er mikilvægt að komast aftur á sigurbraut.

Snæfell þarf nauðsynlega á sigri að halda, en þeir eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni en baráttan er einstaklega hörð og stutt bæði í topp og svo líka að detta úr þeim átta sætum sem gefa sæti í úrslitakeppninni.

Haukarnir eru staðráðnir í því að komast aftur á sigurbraut og hafa lagt hart að sér á æfingum og hvetjum við allt Haukafólk að mæta snemma í Schenkerhöllina, fá sér börger og hita upp fyrir leik.