Haukar – Skallagrímur þriðjudaginn 10. apríl kl. 19:15 í Schenkerhöllinni. Haukar geta komist í úrslit með sigri.

Skallagrímur kemur í heimsókn í Schenkerhöllina þriðjudaginn 10. apríl í þriðja leiknum í undanúrslitum Dominos deildar kvenna. Hauka geta tryggt sig í úrslit með sigri en þær hafa unnið síðustu tvo leiki nokkuð örugglega.

Haukaliðið hefur spilað mjög vel í síðustu tveim leikjum og hafa gjörsamlega stjórnað ferðinni og hefur liðið spilað mjög vel. Nú er bara að klára verkefnið á heimavelli og ná í mikilvægan sigur.

Við hvetjum allt Haukafólk og Hafnfirðinga til að mæta og styðja stelpurnar.