Haukar með 9 fulltrúa í U15, U16 og U18 landsliðum karla og kvenna

KKÍ birti í dag lista yfir leikmenn sem voru valdir í U15, U16 og U18 ára landslið karla og kvenna sem taka þátt í Copenhagen Invitational (U15) og Norðurlandamóti yngri landsliða í Solna í Svíþjóð (U16 og U18) í sumar. Einnig munu U18 landsliðin taka þátt í Evrópumóti FIBA Europe síðar í sumar.

Yngri flokka starf Hauka er því í fullum blóma þar sem við eigum 9 fulltrúa í þessum liðum.

Anna Lóa Óskarsdóttir var valin í U15 lið kvenna.

Dýrfinna Árnadóttir, Inga Rún Svansdóttir og Sylvía Rún Hálfdanardóttir voru valdar í U16 lið kvenna.

Sólrún Inga Gísladóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir varu valdar í U18 lið kvenna.

Hjálmar Stefánsson, Kári Jónsson og Kristján Leifur Sverrisson voru valdir í U18 lið karla. 

 Fréttatilkynning KKÍ