Haukar – KR í Dominos deild karla í kvöld kl. 19:15

emilbarjaÍslandsmeistararnir úr KR koma í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld og leika við heimamenn kl. 19:15 í kvöld.

Haukarnir hafa verið að spila ágætlega og unnu fyrsta heimaleikinn á móti Snæfell nokkuð örugglega en lágu svo á útivelli á móti Keflavík í æsispennandi tvíframlengdum leik. Í þeim leik má segja að Haukar hafi hent frá sér sigrinum, höfðu leitt allan leikinn en vantaði skynsemina til að gera út um leikinn. Keflvíkingar komust yfir í fjórða leikhluta en strákarnir sýndu styrk og náðu að knýja fram framlengingu. Í þeirri framlengingu spiluðu strákarnir mjög vel og hefðu átt að klára leikinn auðveldlega en tókst á einhvern óskiljanlegan hátt að henda frá sér leiknum og úr varð framlenging nr. II. Þar voru heimamenn mun sterkari og unnu að lokum sigur.

Nú þurfa heimamenn að sýna styrk sinn því ekki dugar neitt annað en góður leikur á móti firnasterku liði KR. Strákarnir þurfa að vera einbeittir og stjórna leiknum. KR hafa eins og haukar, tapað einum og unnið einn og því má búast við hörku leik.

Við hvetjum alla til að mæta snemma, fá sér börger og hita vel upp fyrir leikinn.

Áfram Haukar