Haukar komnar í 2-0

Haukastúlkur komu sér í góð mál í einvíginu við Keflavík í kvöld þegar þær unnu sannfærandi 65-80 með næsta leik á heimavelli þar sem kústurinn frægi gæti farið á loft.

Lele Hardy fór fyrir Haukum að venju og skoraði hún 21 stig tók 15 fráköst og átti 5 stoðsendingar.

Auður Íris Ólafsdóttir átti einnig stórleik en hún skoraði 18 stig og tók 8 fráköst.

Margrét Rósa Hálfdanardóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir voru líka flottar í kvöld með 12 og 13 stig. 

Umfjöllun á Karfan.is
Umfjöllun á Vísir.is
Umfjöllun á Mbl.is

Viðtal við Lele á Karfan.is
Viðtal Við Badda á Mbl.is

Myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Tölfræði leiksins