Haukar – KA kl. 19:15 þriðjudaginn 4. ágúst

mflhaukarHaukar taka á móti KA-mönnum í 1. deild karla á morgun, þriðjudaginn 4. ágúst, kl. 19:15 og fer leikurinn að sjálfsögðu fram á Ásvöllum.

Okkar strákar eru sem stendur í 8. sæti með 17 stig en með sigri komast þeir upp fyrir HK í 7. sætið. KA er í 5. sæti með 22 stig.

Búast má við flottu fótboltaveðri á morgun og því tilvalið að skella sér á völlinn og hvetja okkar stráka í Haukum til sigurs en þess má geta að þegar rennt er yfir þá leikmenn sem að spilað hafa fyrir félögin í 1. deild karla hingað til í sumar má sjá að Haukar eru með flesta uppalda leikmenn eða 17 af 23. Það þýðir að 74% af öllum leikmönnum liðsins eru uppaldir hjá félaginu.

Áfram Haukar!