Glæsilegur sigur gegn KA – Næsti leikur gegn Fram á föstudaginn!

Björgvin skoraði annað mark Hauka.

Björgvin skoraði annað mark Hauka.

Haukar sigruðu KA 2-1 á Ásvöllum í gærkvöldi í lokaleik 13. umferðar 1. deildar karla.  Með sigrinum komust Haukar í 7. sætið með 20 stig en KA er enn í 5. sæti með 22 stig.

Það voru þeir Andri Fannar Freysson og Björgvin Stefánsson sem skoruðu mörk okkar manna í síðari hálfleik en KA náði að pota inn marki í uppbótartíma.

Frábær liðsheildarsigur staðreynd en að leik loknum var Gunnlaugur Fannar Guðmundsson valinn maður leiksins.

Næsti leikur verður gegn Fram á föstudaginn, 7. ágúst, í Úlfarsárdal og hefst kl. 19:15.

Fjölmennum í Úlfarsárdalinn og hvetjum strákana til sigurs sem stefna að sjálfsögðu á að endurtaka leikinn frá fyrri umferðinni sem lauk með sigri Hauka 2-1.

Áfram Haukar!

Umfjöllun fjölmiðla eftir leikinn gegn KA:

Viðtal við Luca á fotbolti.net: http://fotbolti.net/news/04-08-2015/luka-kostic-vorum-med-leikinn-allan-timann-i-okkar-hondum

Visir.is: http://www.visir.is/bein-utsending-haukar—ka-sidasti-sens-ka-manna-/article/2015150809811

Mbl.is: http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2015/08/04/ka_fjarlaegist_enn_drauminn_ad_fara_upp/

Svipmyndir úr leiknum á Sport TV: http://sporttv.is/