Haukar heimsækja DHL höllina í kvöld í Dominos deild kvenna.

Mfl. kvenna í Dominos deildinni heimsækir KR í DHL höllina í kvöld og hefst leikurinn kl. 19:15.

Haukastelpur sigriðu Skallagrím í síðasta leik og voru án Lele Hardy en hún mun ekki leika meira með liðinu þar sem sagt var upp leikmannasamningi við hana fyrir stutt. Við þökkum Lele fyrir góða frammistöðu með liði Hauka í vetur.  Haukaliðið spilaði gríðarlega vel í síðasta leik og var Eva Margrét í lykilhlutverki inní teig í fjarveru Lele og skilaði frábærum tölum og var valinn leikmaður umferðarinn hjá Körfunni. Eva skilaði 24 stigum, 11 fráköstum og 3 stoðsendingum og var með frábæra nýtingu, eða 71%.

Við hvetjum Haukafólk til að fjölmenna í vesturbæinn og styðja stelpurnar.

Áfram Haukar.