Haukar fara í heimsókn í Garðabæinn í Dominos deild kvenna, miðvikudaginn 24. okt.

Íslandsmeistarar Hauka í Dominos deild kvenna heimsækja lið Stjörnunnar í Mathúsar höll Garðbæinga nk. miðvikudag og hefst leikurinn kl. 19:15

Haukar og Stjarnan eru jöfn að stigum, hafa bæði unnið tvo leiki og tapað tveim af fyrstu fjórum umferðunum. Stjarnan lá á útivelli á móti Skallagrím í síðasta leik og Haukar láu á heimavelli á móti bikarmeisturum Keflavík.

Haukaliðið spiliði ágætan sóknarleik í síðasta leik en það vantaði aðeins uppá varnarleikinn en Keflvíkingar voru að vísu að hitta gríðarlega vel og voru erfiðar viðureignar. Margir ljósir punktar hjá Haukaliðinu þrátt fyrir tap í síðasta leik.

Ljóst er að þetta verður hörkuleikur en deildin er gríðarlega jöfn og spennandi.

Við hvetjum Haukafólk til að heimsækja nágranna okkar og hvetja stelpurnar áfram í baráttunni.