Hauka-leikur og gott veður á föstudag: Þú ert að mæta á Ásvelli!

bjoggiHaukar taka á móti Víking frá Ólafsvík í tólftu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn. Leikurinn hefst kl. 19:15 en hægt verður að fá sér kaldann ca. 30-45 mín. fyrir leik þegar þjálfari fer yfir plan kvöldsins.

Okkar strákar sigruðu HK, 2-0, á Ásvöllum sl. mánudag og er liðið í sjöunda sæti með 16 stig. Víkingur Ó. er í þriðja sæti með 23 stig en liðið beið lægri hlut gegn Fjarðarbyggð á útivelli í síðustu umferð.

Þess má til gamans geta að Aron JP var valinn leikmaður 11 umferðar að mati Fotbolti.net og þá var hann ásamt Will markverði valinn í úrvalslið umferðarinnar.

Við hvetjum stuðningsfólk Hauka að fjölmenna á Ásvelli á föstudaginn, horfa á flottan fótbolta og hvetja strákana til sigurs!

Áfram Haukar!