Gunnhildur semur til tveggja ára

Gunnhildur Gunnarsdóttir mun klæðast Haukatreyjunni áfram en hún og Haukar hafa komist að samkomulagi um að Gunnhildur spili með liðinu næstu tvö árin.

Gunnhildur var einn af máttarstólpum silfurliðs Hauka og er ljóst að hlutverk hennar verður ekki síður minna á komandi leiktíð.

Gunnhildur er núna stödd í Noregi með A-landsliðinu sem keppir á NM og mun hún undirrita samninginn eftir að NM lýkur.