Grindavík – Haukar í Röstinni kl. 19:15 í kvöld, fimmtudag.

EmilHaukar fara til Grindavíkur í kvöld og keppa við Heimamenn í annarri umferð Dominos deilda karla

Bæði lið unnu sinn leik í fyrstu umferð, Haukar á heimavelli á móti nýliðum Skallagríms og Grindvíkingar unnu sterkan sigur á Þór Þ. á heimavelli.

Haukarnir spiluðu án Emils Barja í fyrsta leiknum en það kom ekki að sök og lönduðu Haukar nokkuð öruggum sigri, þó svo að nýliðarnir hafi gert nokkuð harða atlögu í fjórða leikhluta. Strákarnir spiluðu ágætlega þennan fyrsta leik, sérstaklega í fyrr hálfleik en það dróg aðeins úr liðinu í fjórða leikhluta og ljóst að liðið þarf aðeins að komast í betra leikform. Emil kemur inní liðið í dag en Arnór Bjarki sem stóð sig vel í fjarveru Emils verður fjarverandi vegna meiðsla.

Búast má við hörku leik í kvöld á milli tveggja góðra liða.