Góður árangur yngri flokka körfunnar í bikarkeppni KKÍ

drengjaflokkur slandsmeistarar 2014Helgina 20 – 22 febrúar verður haldin bikarúrslitahelgi meistaraflokka og yngri flokka KKÍ í laugardagshöllinni.

Haukar áttu 8 lið af 9 mögulegum hjá yngri flokkum í undanúrslitum. Einungis 10. flokkur kvenna náði ekki í undanúrslit.  Allir flokkarnir nema unglingaflokkur karla hafa lokið sínum undanúrslitaleikjum og hafa 5 flokkar unnið sína leiki og komist í úrslitaleikinn sem er stórkostlegur árangur. Unglingaflokkur karla mun keppa við FSU á Self0ssi, miðvikudaginn 18. febrúar og hvetjum við sem flesta til að gera sér bíltúr á suðurlandið og hvetja strákana áfram.

9. flokkur drengja sigraði Njarðvík á útivelli í hörkuleik, 10 flokkur drengja sigraði Fjölni örugglega á heimavelli og var það í fyrsta skiptið sem þeir náðu sigri á móti Fjölni. 11. flokkur drengja tapaði fyrir Grindavík/Þór Þ. í Grindavík, Drengjaflokkur sigraði Grindavík/Þór Þ. í hörkuleik á heimavelli en drengjaflokkur er ríkjandi Íslandsmeistari og tapaði úrslitaleik bikarsins í fyrra. 9. flokkur stúlkna tapaði fyrir Grindavík á útivelli. Stúlknaflokkur sigraði Njarðvík örugglega á heimavelli og unglinga flokkur kvenna sigraði einnig Njarðvík nokkuð örugglega á heimavelli.

Haukar geta því átt 6 lið af 9 mögulegum í úrslitum ef unglingaflokkur sigrar sinn leik þann 18. n.k. sem er einstaklega flottur árangur.

Við hvetjum auðvitað alla til að mæta í Höllina helgina 20-21 febrúar en þeir hörðustu þurfa örugglega að taka með sér nesti og svefnpoka.

Nánar um tímasetningar kemur er nær dregur.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…