Fyrsti leikur tímabilsins hjá stelpunum. Haukar – Stjarnan kl. 19:15 á miðvikudag kl. 19:15

Fyrsti leikurinn hjá stelpunum í Dominos deildinni verður miðvikudaginn 4. október kl. 19:15 i Schenkerhöllinni er Stjarnan kemur í heimsókn.

Stelpunum er spáð góðu gengi fyrir tímabilið en Haukaliðinu er spáð öðru sæti í deildinni.

Haukaliðið hefur styrkst mikið, en Helena Sverrisdóttir er komin til baka eftir barneignarleyfi, en auk þess er nýr öflugur erlendur leikmaður einnig kominn í liðið. Hið unga lið Hauka stóð sig mjög vel í fyrra og má búast við þessum sömu ungu stúlkum mun betri á komandi leiktíð. Leikmenn eins og Þóra Jónsdóttir hefur fengið eldskírn sína með A landsliðinu og svo hafa Dýrfinna, Rósa, Ragnheiður, Þórdís, Anna Lóa og Sigrún spilað stór hlutverk í yngri landsliðum í sumar og því má búast við liðinu sterku í vetur. Auk þess fékk liðið styrk í Fanney, sem kom frá Fjölni og hefur hún verið að standa sig vel með liðinu á undirbúningstímabilinu.

Við hvetjum alla til að mæta í Schenkerhöllina og sjá liðið í þessum fyrsta leik og hvetja stelpurnar til sigurs.