Fréttasafn

  • Arnar Þorsteinsson hraðskákmeistari

    Akureyringurinn Arnar Þorsteinsson, sem búsettur er í Hafnarfirði, varð í gærkveldi hraðskákmeistari Hafnarfjarðar 2005. Alls tóku 21 þátt í mótinu og var teflt 2×7 umferða monrad. Það var aftur á móti Hrannar Baldursson sem stal senunni og sigraði örugglega á mótinu. Vegna búsetu og félags utan Hafnarfjarðar, gat Hrannar þó ekki gert tilkall til titilsins….

  • Frábært hjá Sverri Þorgeirssyni !!!

    Sverrir Þorgeirsson sigraði á unglingameistaramóti Reykjavíkur sem fram fór um helgina. Sigurinn var mjög sætur þar sem flestir af efnilegustu skákmönnum okkar Íslendinga tóku þátt. Vegna búsetu og félags utan Reykjavíkur gat Sverrir ekki gert tilkall til titilsins, en hann sigraði engu að síður á mótinu. Haukamenn, sem og aðrir Hafnfirðingar, geta verið afar stoltir…

  • Deildarkeppnin í skák.

    Deildarkeppnin í skák heldur áfram núna um næstu helgi. Þeir sem að hafa áhuga á að tefla með vinsamlegast hafið samband við Inga (616-9868) eða Aua (821-1963) Við eigum góða möguleika á að komast upp um deildir, B-liðið upp úr 4. deild og A-liðið upp úr 2. deild. En þá þarf samstilltar hendur og menn…

  • Æfingaleikir sl. vikur

    Meistaraflokur karla hefur spilað fjöldan allan af æfingaleikjum að undanförnu. Í gær, laugardaginn 26. febrúar, lék liðið við Sindra frá Hornafirði og lauk leiknum með 10-2 sigri Hauka. Ómar Karl skoraði fjögur mörk líkt og Hilmar Rafn, en Betim og Kristófer settu sitt hvort markið. Úrslit úr öðrum æfingaleikjum sem háðir hafa verið í janúar…

  • Haukar-FH

    Sunnudaginn 27. febrúar munu Haukastelpurnar mæta FH-ingum í harðri baráttu.. þennan leik verðum við að vinna ef við eigum að eiga einhvern möguleika á að að vinna þetta mót…. Leikurin fer fram í Fífunni og mun hann hefjast kl. 20:00, Haukastelpur eiga að mæta kl. 19:00… ekki er víst hverjir verða með en vitað er…