Fréttin sjálf
-
-
Æfingamót í Reykjarneshöllinni
Sæl, Á morgun, laugardaginn 26. nóvemeber, er æfingamót í Reykjaneshöllinni. Það eiga allir strákarnir að vera mættir kl: 13:00 til Keflavíkur. Þeir sem ekki geta reddað sér fari geta komið með mér eða að ég kem þeim með einhverjum öðrum. Mótsgjald er 1300kr. Mótinu lýkur um kl: 18:00. Vinsamlega boðið forföll! Bestu kveðjur Óli
-
Skákæfing 22.nóvember
Alls tóku 14 manns þátt í skákæfingunni í gærkveldi. Æfingin hefur oft verið sterkari, en menn á borð við Heimi og Jón M. sáu sér ekki fært að mæta. Varði náði að vinna sína aðra æfingu í röð og nú eftir harða baráttu við Sverri Þorgeirsson. Þeir kappar voru jafnir að vinningum þegar þeir mættust…
-
Haust-Faxaflóamót 2.flokks karla
2.flokkur karla hefur síðastliðna þrjá laugardaga spilað leiki sína í B-riðli Haust-Faxaflóamótsins. Fyrst tóku Haukar á móti FH2 og sigruðu 4-3 og viku seinna kom Grindavík í heimsókn en fór með sigur af hólmi 2-1 þrátt fyrir að leika manni færri síðustu 20 mínúturnar. Að lokum mættust Haukar og Selfoss í leik á Ásvöllum sem…
-
Haukar mæta Helli.
Haukar mæta Helli í undanúrslitum Bikarkeppni TG í Atskák. Keppt verður á miðvikudagskvöldið kl. 20.
-
Snorri vann!!!!!!!!!!!
Haukamaðurinn Snorri G. Bergsson varð öruggur sigurvegari í Bikarsyrpu Eddu útgáfu og Taflfélagsins Hellis sem lauk í gærkvöld. Magnús Örn Úlfarsson varð annar og Rúnar Sigurpálsson þriðji. Síðan varð Davíð Kjartansson í 8. sæti. Snorri varð einnig í 2-3 sæti í Íslandsmótinu í Netskák. Halldór Brynjar varð í 7-9. sæti og Davíð Kjartansson í 10-12….
-
Faxaflóamót 4. flokks kk
Í dag spilað 4 fl.kk A og B lið við Selfoss. Leikur A liðsins hófst kl.14.00 og byrjuð Selfoss strákar af miklum krafti. Fljótlega fengu þeir vítaspyrnu sem Arnar Daði varð glæsilega. Síðan lá á Haukunum sem endaði með þremur mörkum Selfyssinga hálfleikslok. Gerðar voru smábreytingar á Haukaliðinu í hálfleik og mættu þeir mun einbeittari…
-
Skákæfing 15. nóvember
16 manns tóku þátt í skákæfingunni síðastliðið þriðjudagskvöld. Siggi Sverris mætti galvaskur eftir nokkurt hlé og auk þess var öll ættin samankomin. Snorri þurfti að yfirgefa svæðið snemma vegna veikinda og tók formaðurinn sæti hans. Rögnvaldur byrjaði á því að leggja Varða í 1.umferð, en þeim síðarnefnda tókst að vinna allar skákir sínar eftir það….
-
Skákæfing 8.nóvember
Sverrir Þorgeirsson sigraði sína aðra æfingu á stuttum tíma og skaut aftur fyrir sig mönnum á borð við Heimi og Varða. Röð efstu manna: 1.Sverrir Þorgeirsson 2.Heimir Ásgeirsson 3.Þorvarður F. Ólafsson Aui er væntanlegur með nánari fréttir af þessari æfingu.
-
ÆFINGARLEIKUR 20.11
Á morgun sunnudag 20.11 koma Árbæjarstelpur – Fylkir í heimsókn til okkar. Mæting er kl. 10.00 og verðum við til rúmlega 11.00 eða ca. 11.20/30 – gerið ráð fyrir alla vegana 30 mín auka. Koma vel klæddar við komum til með að nota vesti – allar að mæta – sjáumst- munið að fara snemma að…
