Allar fjöldatakmarkanir vegna Covid-19 afnumdar.
Þær ánægjulegu fréttir voru að berast að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með 26. júní næstkomandi falli úr gildi allar takmarkanir á samkomum innanlands. Í þessu felst meðal annars fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þann 1. júlí taka einnig gildi…
