Jón Aðalsteinn Kristjánsson ráðinn þjálfari 2. flokks karla í knattspyrnu
Gengið hefur verið frá ráðningu Jóns Aðalsteins Kristjánssonar sem þjálfara 2. flokks karla í knattspyrnu fyrir komandi tímabil. Jón eða Nonni eins og hann er jafnan kallaður er okkur að góðu kunnugur en hann er Haukamaður og spilaði með yngri flokkum Hauka. Nonni er fæddur árið 1977, og hefur þjálfað í neðri deildunum hér á…
