-
-
Björgvin Stefánsson gengur til liðs við Val
Knattspyrnudeild Hauka og Knattspyrnudeild Vals hafa komist að samkomulagi þess efnis að Björgvin Stefánsson, leikmaður meistaraflokks Hauka, gangi til liðs við Val og spili með liðinu í Pepsí deildinni á komandi tímabili. Björgvin fer á láni til Vals sem hefur kauprétt á honum eftir tímabilið. Knattspyrnudeild Hauka óskar Björgvin góðs gengis á komandi sumri með…
-
Úrslitin ráðast í Dominos deild kvenna í kvöld í Schenkerhöllinni
Hauka stúlkur mæta Snæfelli í fimmta leik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld, þriðjudaginn 26. apríl, kl. 19:15 í Schenkerhöllinni. Allar fjórar fyrri viðureignir þessara liða hafa unnist á heimavelli og því má telja að heimamenn hafi gott forskot í leiknum í kvöld. Aftur á móti þarf gleðin og baráttan að vera til staðar til…
-
KR – Haukar í kvöld kl. 19:15. Fjölmennum í Vesturbæinn.
Haukarnir eru komnir með bakið uppvið vegginn fræga og þurfa nauðsynlega á sigri að halda ef þeir ætla ekki að fara í sumarfrí í kvöld. Í síðasta leik spiluðu Haukarnir vel, þrátt fyrir að byrja illa og voru í miklum vandræðum sóknarlega í fyrsta leikhluta. Liðið var samt að skapa sér færi en leikmenn brenndu…
-
Geta tryggt sér Íslands- meistaratitilinn í kvöld
Fjórði leikur i viðureign Hauka og Snæfells fer fram í kvöld kl. 19:15 í Hólminum og með sigri geta Haukastúlkur tryggt sér titilinn en staðan er 2-1 fyrir Hauka. Haukarnir unnu síðasta leik í Schenkerhöllinni á ævintýralegan hátt í framlengdum spennu þriller. Eftir slaka byrjun þá stigu stelpurnar upp og spiluðu gríðarlega vel en þó…
-
Giedrius Morkunas hefur framlengt samning sinn við Hauka um eitt ár
Giedrius Morkunas hefur framlengt samning sinn við Hauka um eitt ár. Morkunas hefur átt frábært tímabil og það er mikið gleðiefni að hann verði áfram hjá félaginu.
-
Haukar – ÍBV í dag kl. 16:00
Þá er komið að fyrsta leiknum í 4-liða úrslitum hjá strákaunum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja strákana til sigurs.
-
5. Flokkur karla A lið vann síðasta mót vetrarins
5. Flokkur karla A lið vann síðasta mót vetrarins. Þeir stóðu sig með prýði og unnu alla leikina í mótinu. Þeir enduðu í 2. Sæti á Íslandsmótinu þegar samanlagður árangur vetrarins er gerður upp. Þess má geta að þessir drengir spila sem B lið 4. Flokks á yngra ári og urðu þar deildarmeistarar í 3….
-
Leikjaskólinn verður á morgun kl. 10:00 í salnum
leikjaskólinn verður kl. 10:00 í A salnum, báðir hópar saman í þetta skiptið.
-
Haukar – KR í kvöld kl. 18:30 í úrslitum Dominos deildar karla
ATH breyttur leiktími, en leikurinn byrjar kl. 18:30 Leikur II um Íslandsmeistaratitilinn í Dominos deild karla fer fram í kvöld, föstudaginn 22. apríl kl. 18:30 en þá koma KRingar í heimsókn í Schenkerhöllina og muu etja kappi við Haukamenn. KR lagði Haukana í fyrsta leik og eru strákarnir staðráðnir í því að hefna fyrir það…
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
