Jóla- og nýárskveðjur frá Knattspyrnufélaginu Haukum
Knattspyrnufélagið Haukar sendir félögum sínum, stuðningsmönnum og Hafnfirðingum öllum, bestu jóla og nýárskveðjur með þökkum fyrir góðan stuðning á árinu sem er að líða.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Knattspyrnufélagið Haukar sendir félögum sínum, stuðningsmönnum og Hafnfirðingum öllum, bestu jóla og nýárskveðjur með þökkum fyrir góðan stuðning á árinu sem er að líða.
Kári Jónsson og Helena Sverrisdóttir voru valin körfuknattleiksfólk Hauka fyrir árið 2016 og óskar heimasíðan þeim innilega til hamingju með titilinn. þau eru jafnframt tilnefnd af Haukum sem íþróttafólk Hauka og Hafnarfjarðar. Ívar Ásgrímsson þjálfari mfl. liðs karla var einnig valinn þjálfari ársins hjá deildinni. Kári Jónsson hefur átt frábært ár og var stórkostlegur hjá…
Pétur Ingvarsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari mfl. karla í Dominos deildinni í vetur hefur verið ráðinn aðalþjálfari 1. deildar liðs Hamars frá Hverigerði. Hamar situr í fimmta sæti í 1. deildinni hefur ekki þótt spila skv. væntingum í vetur og vilja forráðamenn fá Pétur til að koma liðinu á rétta braut, en Pétur þekkir vel…
Knattspyrnudeild Hauka skrifaði í kvöld undir samninga við þær Heiðu Rakel Guðmundsdóttur, Rún Friðriksdóttur og Töru Björk Gunnarsdóttur. Heiða Rakel hefur leikið 52 leiki með meistaraflokki kvenna og skorað 14 mörk þrátt fyrir að vera aðeins tvítug að aldri. Rún á að baki 61 leik með meistaraflokki kvenna en hún er 25 ára. Tara Björk…
Vörurnar frá Errea sem voru seldar á síðasta söludag hjá kkd. Hauka verða afhentar á Ásvöllum, þriðjudaginn 20. des. milli kl. 16:00 – 18:30. Hægt er að hafa samband við Ívar í s:8612928 ef áðurnefndur tími hentar ekki.
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hefur gert samning við Knattspyrnudeild Vikings en Gunnlaugur hefur spilað með meistaraflokki Hauka frá árinu 2011 og spilað 100 leiki fyrir félagið. Gunnlaugur spilar í stöðu miðvarðar og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Hauka undanfarin ár og hefur nú ákveðið að reyna fyrir sér í Pepsí deildinni. Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráð…
Að venju verður boðið til skötuveislu hér á Ásvöllum á Þorláksmessu. Veislan hefst kl. 12 og er boðið uppá kæsta skötu og saltfisk. Áhugasömum er bent á að hægt er panta borð í síma 525 8700 eða á netinu bhg@haukar.is
Þá er komið að síðasta leik meistaraflokks karla í handbolta fyir jól og er sá leikur ekki að verri endanum því boðið verður upp á Hafnarfjarðarslag því að Haukamenn skellas ér yfir lækinn og heimsækja nágranna okkar í FH. Leikurinn verður spilaður í Kaplakrika á fimmtudag kl. 19:30. Á þessum tímapunkti á tímabilinu er þessi…
Sædís Kjærbech Finnbogadóttir endurnýjaði í dag samning sinn við knattspyrnudeild Hauka en hún er uppalin hjá félaginu. Sædís hefur spilað með meistaraflokki frá árinu 2006 og á að baki yfir 120 leiki. Sædís kveðst vera spennt að spila í Pepsí deildinni á næsta ári; ,,Ég hlakka mikið til að spila aftur í Pepsí deildinni og…
VIÐ SKOKKUM Í FRIÐI OG SPEKT – ALLIR VELKOMNIR Kirkjuhlaup í Hafnarfirði ANNAN í jólum. Skokkhópur Hauka býður öllum í Kirkjuhlaup. Við hittumst tímanlega við Ástjarnarkirkju kl. 10:00. og byrjum með léttri Hlaupamessu. Við leggjum svo af stað í hlaupið kl. 10:30. Í fyrra skokkuðu ríflega 200 ferskir hlauparar með okkur alls staðar að. Hlauparar…