Fjórar úr knattspyrnudeild Hauka í Hæfileikamótun N1 og KSÍ

Þær Anna Rut Ingadóttir, Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, Rut Sigurðardóttir og Viktoría Jóhannsdóttir hafa verið valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ sem fram fer í Egilshöll dagana 26. – 27. september næskomandi.

Þær Anna Rut og Viktoría eru fæddar árið 2006 og eru að fara á yngra ár í þriðja flokki stúlkna en Ragnheiður og Rut eru að fara á eldra ár í fjórða flokki.

Vel gert stúlkur og gangi ykkur vel!

Anna, Rut, Ragnheiður og Viktoría.