Fjórði leikur í viðureign Hauka – Keflavíkur í kvöld kl. 19:15 í Keflavík

kári jónssonHauka strákarnir náðu að halda sér á lífi í úrslitaeinvíginu gegn Keflvíkingum. Strákarnir spiluðu mjög vel á föstudaginn og leiddu leikinn lengst af en leikurinn var jafn og vel leikinn af beggja hálfu. Strákarnir náðu loksins að halda haus allan leikin og klárðu hann af öryggi.

Í kvöld, mánudag, verður fjórði leikurinn í Keflavík og því hvetjum við alla sem vettlingi geta valdið að gera sér ferð í Reykanesbæ til að hvetja strákana til sigur og ná að knýja fram oddaleik á fimmtudaginn í Schenkerhöllinni.

Rútuferð fer frá Ásvöllum kl. 18:00 og kostar kr. 1.000,-